Einfaldari og ódýrari húsfélagsrekstur
Bókhalds- og umsjónarkerfi fyrir húsfélög.
Ef eitthvað af þessu á við, þá gæti Húsró verið lausnin
- Gjaldkerinn er orðinn þreyttur á tímafrekri handavinnu
- Húsfélagið vill einfalda reksturinn
- Húsfélagið er að borga allt of mikið fyrir húsfélagsþjónustu
- Stjórnin og/eða aðrir eigendur vilja meiri yfirsýn yfir fjármálin
- Fjárhagsyfirlit
- Ársreikningur
- Rekstrar- og framkvæmdaáætlun
- Fagleg skipting húsgjalda
- Útsending greiðsluseðla
- Yfirlit greiddra og ógreiddra húsgjalda
- Endurgreiðsla útlagðs kostnaðar
- Umsjón framkvæmda
- Tilboðsöflun
- Rafrænar undirskriftir
- Kostnaðarskipting
- Húsfundur frá upphafi til enda
Húsró
Nýr valkostur í húsfélagsrekstri
Nútímalausn fyrir húsfélög sem vilja reka sig sjálf og fá sem mest úr húsgjöldunum. Allt sem viðkemur rekstrinum á einum stað, hannað til að létta á stjórninni og veita öllum í húsinu hugarró.
Viljið þið meiri þjónustu?
Húsró er hugbúnaðarfyrirtæki í grunninn, en við erum að útfæra lausn með samstarfsaðilum fyrir húsfélög sem vilja meiri þjónustu. Hafðu samband og við finnum réttu lausnina.
Sjálfvirkni
sparar tíma og peninga
Með því að nýta okkur sjálfvirkni getum við boðið húsfélögum tól sem einfaldar rekstur húsfélagsins fyrir brot af því sem hefðbundnar húsfélagþjónustur bjóða.
Viltu gefa húsfélaginu þínu stafrænt heimili?
Það er einfalt að byrja. Við setjum upp húsfélagið fyrir þig, flytjum eldri gögn yfir og förum yfir allt með stjórninni.
